Leita í fréttum mbl.is

Veggspjald, Kastljós og Rás 2

Ætlaði með veggspjaldið til Hveragerðis og Þorlákshafnar á morgunn, en hygg að veðurguðirnir séu ekki alveg að spila með;) En læt það bara hér á bloggið uns ég kemst í hinar fornu heimabyggðir Bergþóru.

Upptökur fyrir Kastljós verða á mánudag. Læt ykkur vita um leið og veit hvenær útsending fer í loftið. Þá er Rás 2 búið að staðfesta að tónleikarnir verða teknir upp og ættu auglýsingar um þá að hefjast hjá þeim strax eftir helgi. Eitthvað hafa blöðin verið treg að birta tilkynningar eða sögulegt ágrip á ferli Bergþóru sem tónlistarkonu en vonandi verður bragabót á því í næstu viku.

Tónleikunum verður útvarpað sem liður í páskadagskrá Rásar 2, en segja má að enginn fjölmiðill hafi staðið sig eins vel og Rás 2 í að sýna Bergþóru þá virðingu sem henni ber eftir fráfall hennar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Sögur herma að sjaldan hafi verið eins mikil viðbrögð eftir útvarpsþátt og þátt Andreu Jónsdóttur sem bar yfirskriftina Lífsbók Bergþóru Árnadóttur. Það er ánægjulegt að vita, en vekur hjá manni enn meiri furðu hve þögnin hefur verið mikil hjá öðrum fjölmiðlum. 

Minningartónleikar 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Mikið er ég glöð að heyra af þessu framtaki til minningar um frábæra konu.  Er mjög stressuð að vera ekki búin að tryggja mér miða, fer í málið á morgunn.  Yndislegt að hugsa til að landinn skuli sýna merkri konu slíka virðingu...loksins

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 8.2.2008 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bergþóra

Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Þetta blogg er tileinkað Bergþóru Árnadóttur tónskáldi og söngvaskáldi með meiru sem lést 8. mars 2007. Hér verður hægt að fylgjast með endurútgáfum á tónlist, tónleikum og ýmsu fleiru sem tengist lífi og starfi Bergþóru þó hún sé komin á annað tilverustig.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband