Leita í fréttum mbl.is

Bergþórulag dagsins: Hinsta ferðin

Lagið er af fyrstu breiðskífu Bergþóru sem kom út hjá Fálkanum 1977. Bergþóra hafði mikið dálæti á ljóðum Björns Braga sem dó langt um aldur fram, aðeins 23 ára, en hann þótti hafa mikið skáldablóð í æðum. Björn Bragi tengdist fjölskyldu Bergþóru. Mörg hennar bestu lög eru við ljóð hans.
 
Ljóð: Björn Bragi

Lag: Bergþóra Árnadóttir

 

Rísa bláar bárur,

byrðinginn við.

Í regni og roki,

ræ ég út á svið.

 

Á þóftunni þreyttur,

þar ég sit,

norðan næðingur

nístir mín vit, mín vit.

 

Bráðum ég bergi,

hinn bláa mar.

Lýk ég ljóðinu,

litla þar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bergþóra

Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Þetta blogg er tileinkað Bergþóru Árnadóttur tónskáldi og söngvaskáldi með meiru sem lést 8. mars 2007. Hér verður hægt að fylgjast með endurútgáfum á tónlist, tónleikum og ýmsu fleiru sem tengist lífi og starfi Bergþóru þó hún sé komin á annað tilverustig.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband