Færsluflokkur: Menning og listir
4.12.2007 | 18:32
OFSTÆKI
Ljóð: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Nokkuð er um liðið síðan undirrituð samdi þetta lag við eitt svartsýnasta ljóð Aðalsteins (sem nú er öllu bjartsýnni). Með tiliti til ástandsins í heimsmálum, þykir mér ljóðið einkar vel til hæfi í dag. Tileinkað hugmyndafræði Birgittu og Jóns (Gnarr) Gunnars
Því skyldi ég biðja heiminn um frið
ef það er til einskins.
Því skyldi ég flýja foræðið allt
ef það er til einskins.
Það svaraði enginn svartnættinu,
er lífið drap tímann.
Enginn kunni nein ráð
eða fann lausn við öllum vandanum.
Því ertu að spyrja, þú mannskepna
sem engar vonir átt?
Tortíming er ósk þín
og þú munt sjá til glötunar heimsins.
B.Á.
Af textablaði sem fylgdi hljómplötunni Afturhvarf sem kom út 1983... setti lagið í Tónhlöðuna áðan. Þeir sem sakna hlátursins hennar Bergþóru ættu að hlusta vel á lagið en þar hlær hún á sinn sérstæða og nornalega hátt. Þetta mun vera fjölskylduhlátur í kvenlegg:)
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2007 | 07:19
Sprengjan
Ljóð: Sigfús Kristjánsson
Vald mitt er ógn við allt sem lifir á jörðu.
Allt get ég rifið niður sem mennirnir gjörðu.
Sérhverju lífi er mér gefið að granda.
Þeir gáfu mér afl, sem lætur þá hætta að anda.
Heimsku þjóðir, sem ætluðu dáðir að drýgja,
dreifðu mér víða og hófu mig til skýja.
Fólkið sem bað um miskunn frá himinsins hæðum,
heimti mig þaðan með loganna eitruðu glæðum.
Mennirnir tala fagurt um frið meðal þjóða.
Þá fer ég með leynd að tryggja auð þeirra og gróða.
Svo æsist spilið, þá ólmast ég austur og vestur.
Að endingu verð ég þeirra síðasti gestur.
Hafði ekki heyrt Það vorar í fjöldamörg ár og hafði satt best að segja steingleymt hvaða lög Bergþóra var með á henni. Merkilegt þegar maður er að hlusta á gömlu lögin hennar að þau virðast tímalaus. Kannski er það einmitt það sem er heillandi við svokallaða alþýðulistamenn að verk þeirra eru svo laus við tilgerð að þau eldast einna best.
Ég hef verið að slá inn öll þessi eðal ljóð sem Bergþóra samdi lög við og finnst þetta ljóð hans Sigfúsar alveg magnað. Setti lagið Sprengjan í Tónhlöðu Bergþóru áðan.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2007 | 22:16
Brimfullur kassi af minningum
Fékk í dag barmafullan kassa af ljósmyndum sem mamma átti. Hann hafði leynst á háalofti í Danaveldi. Fór í gegnum hann og skoðaði hverja mynd fyrir sig. Fann alveg ótrúlega mikið af minningum. Ég mun á næstu dögum skanna inn eitthvað af þessum myndum og deila með ykkur. Sumt þjóðþekkt fólk í heldur skemmtilegum aðstæðum. Mamma var svo mikill grallari. Það sést svo vel á þessum myndum. Ég fékk fyrir margt löngu hjá henni allar filmurnar og flokkaði og setti í þar til gerð filmuplöst. Ánægð að ég skildi hafa gert það því sumar af þessum ljósmyndum eru því miður skemmdar.
Svo fékk ég í gær frábærar myndir sem teknar voru við upptökur í Glóru þegar Bergmál var tekið upp.
Bergþóra virðist ekki hafa tekið neitt upp af nýjum lögum undanfarin ár ef frá er skilið Þjóðarblómið og eitt óþekkt lag sem við höldum að hafi verið tekið upp í Danmörku, sennilega í sama hljóðveri.
Heyrði af því að Eyjólfur Bítlavinur og fyrrum Hálft í hvoru félagi mömmu sé að taka upp hljómplötu með lögum eftir mömmu. Ætla að spjalla við hann og fá nánari deili af þessu verkefni. Mun deila því með ykkur þegar ég veit meira. Svo verð ég vonadi kominn með Jólastein í tölvutæku á næstu dögum en það er mesta snilldarjólalag sem ég hef heyrt fyrir þá sem eru haldnir alvöru kaldhæðni að hætti Steins Steinarrs...
Þannið að það er um að gera að fylgjast vel með Tónhlöðunni því ég mun svissa út lögum eins og galin manneskja á næstunni.
25.11.2007 | 10:55
Fortíðarmoli um Bergþóru Árna úr Morgunblaðinu 1967
Er búin að vera að fara í gegnum alla persónulegu munina hennar mömmu, bréf, blaðaútklippur, tónlist, texta, ljóð og sitt hvað fleira sem leynst hefur í kössunum sem ég í fáti fyllti stuttu eftir að hún dó í Danaveldi. Þar hef ég fundið ýmislegt sem ég vissi ekki af eða hafði hreinlega gleymt. Ég vissi til dæmis ekki að hún hefði komið fram á skemmtikraftakynningu í Lídó þegar hún var 19. Læt hér fylgja með viðtalið við hana sem birtist í Morgunblaðinu 29. desember 1967í tengslum við þetta.
Bergþóra Árnadóttir er nítján ára gömul húsmóðir, sem söng lög eftir Aðalbjörgu M. Jóhannsdóttur, móður sína, og lék sjálf undir á gítar.
"Já, ég hef nokkrum sinnum komið fram áður, en ekkert núna síðastliðin þrjú ár".
"Hvenær í ósköpunum byrjaðir þú þá?"
"Ég hef verið að syngja og spila svotil síðan ég man eftir mér. Ég kom svo fram fyrir nokkrum árum í skólanum í Hveragerði, en þar átti ég heima. Ég var einnig í söngleik í Borgarfirði, meðan ég vann að Reykholti".
"Hafa verið gefin út lög eftir móður þína?"
"Nei, þau hafa aldrei komið út á hljómplötu, en við höfum sungið þau mikið heima. Pabbi spilar á gítar, og hann syngur oft lög eftir hana, svona bara fyrir fjölskylduna".
"Og hvað segir eiginmaðurinn við þessum "debut", eigið þið einhver börn?"
"Við eigum eina dóttur, átta mánaða gamla. Hann er nú ekkert allof hrifinn, húsbóndinn, en segir nú samt að þetta sé allt í lagi. Ég veit ekki hvernig hann myndi bregðast við ef ég færi að gera meira að þessu".
"Hefurðu kannski hugsað þér það?"
"Nei ætli það. Mig langaði til að reyna í þetta skipti, en ég býst við að ég komi til með að hafa of mikið að gera, við að gæta bús og barna."
Merkilegt nokk, þá var Bergþóra sú eina af þeim sem voru kynntir í Lídó sem átti eftir að láta eitthvað að sér kveða sem skemmtikraftur. Ég mun skanna myndina af Bergþóru sem birtist með þessu örviðtali og skella hér inn í dag.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.10.2007 | 09:13
Ferðalag Bergþóru í búk maríuhænunar...
Menning og listir | Breytt 22.11.2007 kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2007 | 08:11
Einn gluggi í Eden
tileinkaður minningu mömmu. Núna stendur yfir í Eden sýningin Álfavarp. Mér var boðið að skreyta nokkra gluggi í Eden í því tilefni. Bjó til einn heimilislegan dúk þar sem ég handskrifaði ljóðið sem ég flutti í Himnaför hennar sem fór fram í Hveragerðiskirkju og ein sæt mynd af Maríuhænunni ... er að undirbúa sýningu á ferðalagi Bergþóru í búk Maríuhænunnar og er þetta forsmekkurinn af því. Ég skreytti líka baðstofugluggann. Hvet alla til að kíkja í glugga í Eden ef þeir eru á leið þar um og á sýninguna alla sem er afar sérstæð og þrungin táknum sem okkur er öllum hollt að hugleiða...
Tenglar
Bergþóra á YouTube
Ýmiss myndskeið frá ferli Bergþóru á YouTube
Minningartónleikar
Slóðir sem tengjast Minningartónleikunum 15. febrúar.
- Bergþóra á Myspace Æviágrip, myndir og slatti af tónlist
- Bardukha á Myspace
- Jónas Sigurðsson á Myspace
- Magga Stína á Myspace
- Ragnheiður Gröndal á Myspace
- Steingrímur Guðmundsson á Myspace
- Svavar Knútur á Myspace
Ýmsar slóðir
sem tengjast Bergþóru
Bloggvinir
- agny
- alheimurinn
- almal
- andreaolafs
- andres
- annabjo
- annaragna
- domubod
- atlifannar
- arnim
- arogsid
- kaffi
- birgitta
- bjarkey
- bjarnihardar
- bryndisisfold
- eurovision
- danielhaukur
- dofri
- dora61
- iceman
- saxi
- ernafr
- evabenz
- sifjar
- gretarorvars
- gudni-is
- vglilja
- gummisteingrims
- gudnim
- gmaria
- sigriks
- coke
- nesirokk
- hlynurh
- hrannarb
- ringarinn
- ingibjorgstefans
- jakobjonsson
- jensgud
- jobbisig
- kiddijoi
- kristinm
- kiddirokk
- lauola
- mp3
- maggib
- margretloa
- maggadora
- margretsverris
- omarragnarsson
- ottarfelix
- paul
- palmig
- hafstein
- rannveigmst
- salvor
- pensillinn
- fjola
- sigurjonth
- steinunnolina
- garibald
- possi
- stormsker
- saethorhelgi
- truno
- tryggvigunnarhansen
- valgerdurhalldorsdottir
- eggmann
- thorasig
- vitinn
- motta
- aevark
Tónhlaða Bergþóru
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar