Leita í fréttum mbl.is

Bergþóra Árnadóttir - Heildarútgáfa, er komin út

Forsíða á bækling

Þá er Heildarútgáfan loks komin til landsins - ferlið við að setja saman boxið víst svo flókið að það var verið að vinna að þessu víðsvegar um Evrópu. En þetta er alveg glæsilegt sett. Hljómurinn góður á disknum, bæklingurinn kemur mjög vel út, en hann er 64 síðna smábók. Plötuumslögin í svona örformatti líta líka skemmtilega út. 

Það er Dimma sem gefur Heildarútgáfuna út og hann ætti að vera kominn í verslanir snemma í næstu viku. Auðvitað verður byrjað á að sendast með diskana til þeirra sem pöntuðu sér eintök á tónleikum. En 130 eintök seldust þar í forsölu.

Það eru margar perlur á þessum diskum sem hvergi hafa komið út. Veit um marga sem hafa beðið lengi eftir að fá plöturnar á geisladisk, því plöturnar þeirra löngu gatslitnar.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Magnaður pakki ... meiriháttar! Kærar þakkir til Dimmu og þeirra sem stóðu að útgáfunni.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 27.2.2008 kl. 00:11

2 identicon

Komin með pakkann og byrjuð að hlusta. Þetta er frábært. Takk takk.

Jóhanna Berghild (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 20:29

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Það er alveg stórkostlegt að hafa aðgang að öllum þessum lögum... á einum stað, allar vínylplöturnar orðnar of mikið spilaðar eða hreinlega ekki til...

Það gleður mig að þið eruð ánægðar Jóhanna og Ingibjörg:)

Birgitta Jónsdóttir, 29.2.2008 kl. 07:17

4 identicon

Frábær pakki,gaman,gaman, og takk fyrir stórkostlega tónleika,hefðum ekki viljað missa af þeim.Takk fyrir okkur.Kveðjur frá Þorlákshöfn.

Ellý og Jón (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 08:26

5 identicon

Frábær pakki gaman, gaman.Takk fyrir stórkostlega tónleika,hefðum ekki vilja missa af þeim.Kveðjur frá Þorlákshöfn.

Ellý og Jón (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 08:30

6 identicon

Ég missti af tónleikunum en mamma og pabbi komust og náðu sér í disk og keyptu handa mér ég fer alveg 20 ár aftur i tímann við hlustunina..frábært framtak og mjög falleg eign

Helga Finnsdóttir (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 18:19

7 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Til hamingju með þetta.

Jens Sigurjónsson, 9.3.2008 kl. 19:32

8 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Gaman að fá svona kveðjur:)

Vonandi fer að líða að aukatónleikunum... læt ykkur fylgjast með.

með björtum kveðjum

Bergþórudóttirinn

Birgitta Jónsdóttir, 10.3.2008 kl. 07:41

9 Smámynd: Svanfríður Lár

Tónleikarnir voru hreint út sagt frábærir og stemmingin það ótrúleg. Ég hefði ekki viljað missa af þessu enda gamall "Bergþórufan".  Keypti líka pakkann og búin að fá hann í hús. Yndislegt að heyra aftur í Bergþóru, átti plöturnar en ekkert til að spila þær á. Þetta er frábært hjá ykkur... Takk fyrir mig.

Svanfríður Lár, 11.3.2008 kl. 18:56

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er hægt að panta hér heildarútgáfuna áritaða af þér ?  í Póstkröfu ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2008 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bergþóra

Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
Þetta blogg er tileinkað Bergþóru Árnadóttur tónskáldi og söngvaskáldi með meiru sem lést 8. mars 2007. Hér verður hægt að fylgjast með endurútgáfum á tónlist, tónleikum og ýmsu fleiru sem tengist lífi og starfi Bergþóru þó hún sé komin á annað tilverustig.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband